Rými fyrir þinn vöxt
Klettás frá upphafi
Klettás ehf. er fasteignafélag sem á, þróar og rekur atvinnuhúsnæði á lykilstöðum á höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi.
Félagið var stofnað árið 2000 og að baki eigendahópnum stendur um 45 ára reynsla af rekstri og þróun fasteigna.

Fjöbreytt úrval
Eignasafn Klettáss og tengdra félaga telur um 70.000 fermetra og samanstendur af fjölbreyttu skrifstofu-, verslunar-, lager- og iðnaðarhúsnæði.
Meðal helstu verkefna félagsins er Norðurtorg á Akureyri, öflugur verslunar- og þjónustukjarni sem hefur fest sig í sessi sem mikilvægur áfangastaður á Norðurlandi.
Áherslur klettáss
Klettás leggur áherslu á að skilja þarfir hvers viðskiptavinar og bjóða lausnir sem styðja við rekstur og framtíðarsýn fyrirtækja.
Hvort sem um er að ræða tilbúið húsnæði, aðlögun á núverandi rými eða nýbyggingu vinnur félagið náið með viðskiptavinum að hagkvæmum og vönduðum lausnum.

Starfsfólk Klettáss





