Sjafnargata 1B - Norðurtorg
603 Akureyri 920-2020m2

Um eignina
Sjafnargata 1B er glæsilegt og nútímalegt atvinnuhúsnæði á öflugu verslunar- og þjónustusvæði á Norðurtorgi, Akureyri. Eigninni er skipt upp í tvö bil, annars vegar um 920 m² og hins vegar um 1.100 m².
Eignin er sérstaklega vel staðsett með framhlið að þjóðvegi 1 og stórum gólfsíðum gluggum sem veita fyrirtækjum mikinn sýnileika og auglýsingagildi. Sjafnargata 1B býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir fyrirtæki sem vilja sameina verslun, sýningarrými, lager og aðra atvinnustarfsemi á einum stað.




