KPMG flytur starfsemi sína í Austursíðu 6

Við bjóðum KPMG hjartanlega velkomin í nýtt húsnæði á 4. hæð að Austursíðu 6. Það er okkur ánægjuefni að fá eitt af leiðandi ráðgjafar- og endurskoðunarfyrirtækjum landsins til liðs við öflugan hóp fyrirtækja í húsinu og hlökkum til farsæls samstarfs á komandi árum.