Olís bætist í hópinn í Sjafnargötu 1B

Olís S1B nota

Samningar hafa náðst milli Olís og Klettáss um leigu á húsnæði í Sjafn­ar­götu 1B, þar sem Olís verður til húsa samhliða Parka. Í húsnæðinu mun Olís koma fyrir hluta af starfsemi sinni á Akureyri ásamt því að opna nýja bíla­þvotta­stöð.


Stefnt er að opnun á nýju ári og verður spennandi að sjá starf­sem­ina taka á sig mynd. Við óskum Olís innilega til hamingju með nýja húsnæðið og hlökkum til að bjóða þau velkomin á Norð­ur­torg.