Tengi flytur í nýtt hús á Norðurtorgi

Tengi-980x1307
Ari Pétursson, Auðunn Svafar Guðmundsson og Pétur Bjarnason frá Klettási/Norðurtorgi, Þórir Sigurgeirsson og Arnar Árnason frá Tengi.

Flutn­ing­ur Tengis í nýtt sérhannað húsnæði á Norð­ur­torgi markar mik­il­væg­an áfanga í áfram­hald­andi upp­bygg­ingu svæðisins. Verkefnið end­ur­spegl­ar þá stefnu Klettáss að þróa vandað at­vinnu­hús­næði í nánu samstarfi við leigutaka, þar sem lögð er áhersla á hagkvæmar, sveigj­an­leg­ar og fram­tíð­ar­mið­að­ar lausnir. Með þessari upp­bygg­ingu styrkist Norð­ur­torg enn frekar sem öflugur þjónustu- og versl­un­ar­kjarni fyrir Akureyri og allt Norð­ur­land.