Verkís bætist í hóp leigutaka í Austursíðu 6

Samningar hafa náðst um leigu á nýju húsnæði fyrir Verkís að Austursíðu 6 og er okkur mikil ánægja að segja frá því að fyrirtækið muni flytja starfsemi sína í húsnæðið. Við hlökkum til að taka á móti starfsfólki Verkís og bjóðum fyrirtækið hjartanlega velkomið í öflugt atvinnuumhverfi. Við erum sannfærð um að þessi viðbót muni styrkja enn frekar samfélagið í húsinu og hlökkum til farsæls samstarfs á komandi árum.