Verslun Ormsson opnar á Norðurtorgi

Samningar hafa náðst um opnun nýrrar verslunar Ormsson á Norðurtorgi og er okkur mikil ánægja að segja frá því að eitt rótgrónasta fyrirtæki landsins á sviði raftækja og heimilistækja bætist í öflugan hóp fyrirtækja á svæðinu. Við bjóðum Ormsson hjartanlega velkomið og hlökkum til farsæls samstarfs.